Vergo
Vergo er málakerfi fyrir íslenskar lögmannsstofur (Vergo Law) og önnur sérfræðifyrirtæki (Vergo Core). Með tengingunni getur Claude flett upp í Vergo og skráð fyrir þig, með sömu heimildum og þú hefur sjálf(ur). Hvað getur Claude gert? - Málskostnaður: sýnt tímaskráningar þínar, skráð tíma, föst gjöld og útlagðan kostnað á mál og farið með þér yfir tillögur Vergo að tímaskráningu úr Outlook og vinnu í Vergo. Verð, afsláttur og virðisaukaskattur fylgja málinu, eins og þegar þú skráir sjálf(ur). - Mál og verkefni: fundið mál eftir heiti, málsnúmeri eða umbjóðanda, sýnt og síað verkefni og verkliði, stofnað verkefni og breytt fresti, ábyrgðarmanni eða stöðu. - Tengiliðir: flett upp umbjóðendum, gagnaðilum og öðrum tengiliðum. - Réttarheimildir: leitað í réttarheimildasafni Vergo, sem nær yfir gildandi lagasafn, reglugerðir, dóma Hæstaréttar, Landsréttar og héraðsdóma, úrskurði kærunefnda og stofnana eins og Persónuverndar og dóma Mannréttindadómstóls Evrópu. Leitað er eftir leitarorðum, merkingu eða lagatilvísunum, allt niður á grein og málsgrein. Claude les heimildirnar í heild, vistar þær á mál og vísar í þær með tengli inn í Vergo. Stjórn og öryggi - Þú skráir þig inn með Vergo-aðganginum þínum (OAuth). Lykilorðið þitt fer aldrei til Claude. - Slökkt er á gervigreindartengingum þar til stjórnandi kveikir á þeim. Stjórnandinn velur hvað tengingar mega gera á hverju sviði: lesa, skrá eða stofna og breyta. - Þegar þú tengir velur þú hvað Claude má gera. Aðgerðir sem breyta gögnum eru sérmerktar og Claude ber þær undir þig áður. - Hver tenging gildir aðeins í einu fyrirtæki. Stjórnendur sjá allar tengingar og geta aftengt þær hvenær sem er. Það sem þarf Aðgang að Vergo í fyrirtæki þar sem stjórnandi hefur kveikt á gervigreindartengingum (Stillingar > Tengingar > Fyrirtækjatengingar). Hægt er að spyrja bæði á íslensku og ensku.
Where it stands
Tools
accept_worklog_ suggestion add_source_ to_ project create_expense create_fee create_task create_worklog dismiss_worklog_ suggestions find_laws get_source_ content get_task list_my_ projects list_my_ worklogs list_project_ prices list_project_ sources list_project_ tasks list_source_ types list_tasks list_worklog_ suggestions research_sources search_contacts search_sources update_task whoami